|
STARFSREGLURForeldrafélags Leikskóla KFUM og K
- Félagið heitir Foreldrafélag Leikskóla KFUM og K.
- Félagar eru foreldrar og/eða forráðamenn barna á Leikskóla KFUM og K.
- Markmið foreldrafélagsins eru að:
-Stuðla að velferð og tryggja hagsmuni barnanna á leikskólanum
-taka þátt í og styðja starfsemi leikskólans
-efla samvinnu foreldra og starfsfólks leikskólans
-efla kynni og samvinnu foreldra innbyrðis.
- Félagsgjald er ákveðið á aðalfundi. Gjaldið greiðist tvisvar sinnum á ári, í september og mars. Stjórn foreldrafélagsins sér um að innheimta félagsgjaldið. Gjaldið rennur í sjóð sem stendur straum af kostnaði við starfsemi félagsins.
- Kosning til stjórnar félagsins skal fara fram á aðalfundi. Stefnt skal að því að hver deild leikskólans eigi 2-3 fulltrúa í stjórninni. Auk þess skal starfsfólk kjósa einn fulltrúa til setu í henni, þannig að samtals skipi stjórnina a.m.k 5 fulltrúar. Æskilegt er að hluti stjórnarmanna sitji a.m.k. tvö ár í senn. Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum; formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri, kynningarfulltrúi og meðstjórnendur.
- Félagsmenn skulu á aðalfundi móta leiðir að markmiðum félagsins. Bókfæra skal allar ákvarðanir.
- Stjórn félagsins hefur forgöngu um alla vinnu við starfsemi þess. Val verkefna og vinna stjórnarmanna og annarra félagsmanna skal vera innan ramma markmiða félagsins. Stjórnin skal upplýsa félagsmenn um fyrirhugaða starfsemi og helstu ákvarðanir sem teknar eru á stjórnarfundum. Stjórnin kemur saman svo oft sem þurfa þykir en ekki sjaldnar en 6 sinnum á ári.
- Aðalfund skal halda á tímabilinu 15. sept til 1. nóv. ár hvert og skal boða til hans með auglýsingu með a.m.k viku fyrirvara.
Dagskrá aðalfundar skal vera eftirfarandi:1. Skýrsla um starfsemi félagsins sl. starfsár.
2. Reikningar félagsins.
3. Breytingar á starfsreglum.
4. Kosning stjórnar.
5. Ákvörðun félagsgjalds.
6. Önnur mál.
- Tillögur um breytingar á starfsreglum félagsins verða að hafa borist stjórn skriflega í síðasta lagi 3 dögum fyrir auglýstan aðalfund. Breytingar á starfsreglum ná því aðeins fram að ganga að 2/3 fundarmanna greiði þeim atkvæði.
Starfsreglur þessar voru samþykktar á stofnfundi félagsins 6. febrúar 2001
|